Markmið KFF er að eiga lið í efstu deild, bæði í karla og kvennaflokki. Þangað förum við með þinni hjálp!


Í hvaða sæti endar karlalið Fjarðabyggðar í 1. deild í sumar?
7.-8. sæti
9.-10. sæti
11.-12 .sæti
6. sæti eða ofar
  


Andri Þór Magnússon Nr.11
21 árs
Vörn

meira
19 Júní, 2010
Umfjöllun: Þéttur varnarleikur tryggði Fjarðabyggð sigur á HK
HK 0-2 Fjarðabyggð:
0-1 Aron Már Smárason ('8, víti)
0-2 Hilmar Freyr Bjartþórsson ('30)

Fjarðabyggð vann góðan útisigur á HK á Kópavogsvelli í dag en góður og agaður varnarleikur er að skila þeim auknum stigum í deildinni svo þeir eru á leið upp töfluna
...
18 Júní, 2010
Næstu leikir

Næstu leikir hjá Fjarðabyggð eru eftirfarandi:

Meistaraflokkur karla á leik við HK á Kópavogsvelli kl. 14.00 á laugardag. 2.flokkur karla á leik við Skallagrím/Snæfell í Borganesi á sunnudag kl. 14.00 og meistaraflokkur kvenna á næsta leik á miðvikudaginn við Hött á Eskifjarðarvelli.

...
18 Júní, 2010
ÍBV mættu sterkar til leiks í meistaraflokki kvenna og sigrðuðu 1 – 4

Í gær 17.júní spiluðu meistaraflokkar kvenna KFF/Leiknis og ÍBV á Eskifirði og lauk leiknum 1 – 4  fyrir ÍBV. ÍBV er með mjög sterkt lið og gáfu þær ekkert eftir í þessum leik. KFF/Leiknir náði þó forystunni á 28. mínútu þegar Steina Gunnarsdóttir setti boltann í markið eftir nokkuð klafs í teignum. ÍBV jöfnuðu leikinn á 35. mínútu og bættu síðan einu marki við mínútu seinna og staðan í leikhléi 1 – 2 fyrir ÍBV.  Í síðari hálfleik var á brattan að sækja þar sem ÍBV hafði þá sterkan meðvind með sér en stelpunar okkar stóðu í þeim og gátu allt eins skorað eitt til tvö mörk þar sem þær áttu bara nokkuð baráttuglaðan síðari hálfleik. Það varð hins vegar ekki raunin en ÍBV skoraði hins vegar tvö mörk í seinni hálfleik, á 57. og 88. mínútu og  eru greinilega verðskuldað í fyrsta sæti b-riðils 1. deildar með 15 stig eftir 5 leiki en KFF/Leiknir í 4 sæti með 6 stig eftir 4 leiki.

...
16 Júní, 2010
Fjarðabyggð/Leiknir - ÍBV
Á morgun 17. júní kl. 12 mætast Fjarðabyggð/Leiknir og ÍBV í 1. deild kvenna á Eskifjarðarvelli. ÍBV er sem stendur í 1. sæti með 9 stig eftir 3 leiki og hafa skorað 22 mörk og fengið ekkert á sig. Fjarðabyggð/Leiknir er í 4. sæti með 6 stig eftir 3 leiki og hafa skorað 7 mörk og fengið 8 á sig. Mætum nú öll á leikinn á sjálfan þjóðhátíðardaginn og styðjum liðið....
12 Júní, 2010
Tveir sigrar í dag
Kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis vann í dag Fram 3-2 í 1. deild á Eskifirði. Fram hafði yfir í hálfleik en Andrea Magnúsdóttir skoraði 2 mörk í seinni hálfleik og Berglind Lilja Guðlaugsdóttir eitt ásamt því að Fram setti eitt líka og lokatölur því 3-2. 2. flokkur vann síðan Leikni/KB 6-1 á Eskifirði í leik sem er nýlokið og þar skoruðu Haraldur Bergvinsson 2 mörk, Tadas Jocys, Almar Jónsson, Hákon Þór Sófusson og Hilmar Freyr Bjartþórsson sitt markið hver. Frábær helgi hjá Fjarðabyggð, þrír sigrar og vonandi verður framhald á þessu góða gengi....
12 Júní, 2010
Sætur sigur á Eskifirði 1- 0 fyrir Fjarðabyggð gegn KA
Fjarðabyggð sýndi góðan leik í kvöld gegn KA. Framan af var mjög jafnt með liðum, en í síðari hálfleik fór KA liðið að sækja fastar og Fjarðabyggð að þétta sig í vörninni. En þá kom löng sending frá Fannari Árnasyni inn á miðjan vallarhelming KA manna og Aron Már Smárasson hafði betur gegn varnarmanninum og komst innfyrir og lagði boltann laglega fram hjá markverði á 78. mínútu...
11 Júní, 2010
Þrír leikir um helgina
Fyrsti leikurinn er Fjarðabyggð - KA í 1. deild karla föstudag kl. 20 á Eskifjarðarvelli. Stór skörð eru höggvin í lið Fjarðabyggðar en tveir leikmenn og einn þjálfari taka út leikbönn í leiknum. En maður kemur í manns stað og strákarnir gefast ekki upp í mótlæti. Kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis spilar síðan við Fram á laugardag kl. 14 á Eskifjarðarvelli og sama dag kl. 16.30 spila 2. flokks lið Fjarðabyggðar/leiknis/Hugins og Leiknis/KB. Mætum og styðjum okkar fólk. Áfram Fjarðabyggð....
07 Júní, 2010
2.flokkur: Tap gegn Sindra
Sameiginlegt 2.flokks lið Fjarðabyggðar/Leiknis/Hugins tapaði í kvöld sínum fyrsta leik í sumar gegn Sindra 1-2 á Norðfjarðarvelli. Það voru Sindramenn sem komust yfir á 16. mínútu þegar Sævar Knútur Hannesson skoraði og var það staðan í hálfleik. Halldór Bjarneyjarson jafnar síðan leikinn á 75. mínútu eftir klafs í teignum en Sindri náði góðri skyndisókn í lokin og skoruðu sigurmarki á 88. mínútu og var þar að verki Alex Freyr Hilmarsson. Næsti leikur er svo á Eskifjarðarvelli næstkomandi laugardag gegn Leikni/KB....
 
© 2009 copyright Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar Strandgötu 46, 735 Eskifjörður, sími 864-8704, fax 470-1121, e-mail: kff@kff.is ARON Vefumsjónarkerfi