Markmið KFF er að eiga lið í efstu deild, bæði í karla og kvennaflokki. Þangað förum við með þinni hjálp!


Í hvaða sæti endar karlalið Fjarðabyggðar í 1. deild í sumar?
7.-8. sæti
9.-10. sæti
11.-12 .sæti
6. sæti eða ofar
  


Fannar Árnason Nr.19
21 árs
Sókn

meira
18 Apríl, 2008
Stelpurnar leika fyrir norðan..
Stelpurnar spila á sunnudaginn í Lengjubikarnum við Tindastól í Boganum á Akureyri. Leikurinn verður kl.15:00. Allir að mæta sem staddir verða á Akureyri....
15 Apríl, 2008
Myndir
Nú eru komnar inn 20 myndir frá Tyrklandsferð karlaliðs Fjarðabyggðar. Smella þarf á myndir hér í valmöguleikunum til vinstri og smella svo á hópmyndina af Tyrklandsförunum. Þá koma fleiri myndir til að skoða. Síðan smellið þið á fyrstu myndina og þá er hægt að skoða allar myndirnar í albúminu stækkaðar. Endilega kíkið á og skoðið.
...
14 Apríl, 2008
Þj. Hearts: Ungir leikmenn geta tekið Eggert til fyrirmyndar
Stephen Frail, þjálfari skoska úrvalsdeildarliðsins Hearts, segir Eggert Gunnþór Jónsson vera góða fyrirmynd fyrir aðra unga og efnilega leikmenn en íslenski landsliðsmaðurinn hefur staðið sig frábærlega á þessu keppnistímabili....
11 Apríl, 2008
KFF semur við stúlkurnar

KFF hefur samið við 6 leikmenn meistaraflokks kvenna. Um er að ræða svo kallaða sambandssamninga sem eru KSÍ samningar. Stúlkurnar sem um ræðir eru þær Guðbjörg Jónsdóttir, Salóme Rut Harðardóttir, Hafrún Sigurðardóttir, Bergey Stefánsdóttir og Þórdís Benediktsdóttir sem sömdu allar til tveggja ára og Gerður Rún Rúnarsdóttir sem samdi til eins árs.

...
11 Apríl, 2008
KFF lánar Leikni leikmenn
KFF hefur lánað Leikni Fáskrúðsfirði 3 leikmenn tímabundið til 10. maí. Þetta eru þeir Jóhann Örn, Gísli Már og Ingvar Rafn. Þeir munu leika með Leikni í Lengjubikarnum og eru að spila sinn fyrsta leik fyrir þá í kvöld á Akureyri gegn Magna. Þessi leikmenn munu þó að mestu æfa hjá KFF á lánstímanum og er það von okkar að þeir reynist Leiknismönnum vel í Lengjubikarnum og að þessi félög eflist enn meira í samstarfinu....
08 Apríl, 2008
Heim frá Tyrklandi
Leikmenn og starfsmenn karlaliðs Fjarðabyggðar komu til landsins seint í gærkvöldi eftir velheppnaða æfinga og keppnisferð í Tyrklandi. Þetta er í fyrsta sinn sem Fjarðabyggðarliðið fer í svona ferð og óhætt að segja að vel hafi tekist til.  Liðið æfði við góðar aðstæður 2 æfingar á dag og spilaði einnig 2 æfingaleiki við 1. deildarliðin Víking Ólafsvík og rússneska liðið Tekstilshik....
06 Apríl, 2008
Nýr leikmaður
Aleksandar KonjanovskiFjarðabyggð hefur fengið góðan liðsauka því í dag samdi Aleksandar Konjanovski við Fjarðabyggð um að spila með í sumar. Aleksandar er 32 ára reynslumikill miðjumaður og spilar í efstu deild í Makedóníu með félaginu FK Kumanovo. Hann hefur spilað 31 leik þetta tímabil og skorað 5 mörk. Aleksandar kom til móts við æfingahóp Fjarðabyggðar hér í Tyrklandi á föstudag og hefur æft og spilað einn leik með liðinu gegn Tekstilshik....
05 Apríl, 2008
Tap í fyrsta leik hjá stelpunum

Stelpurnar í Fjarðabyggð/Leikni léku sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum í dag og jafnframt sinn fyrsta opinbera leik. Leikurinn byrjaði ágætlega en fljótleg kom munurinn á liðunum í ljós því Völsunsstelpur voru mun sprækari. Staðan var 2-0 í hálfleik fyrir gestina og í seinni hálfleik bættu Húsavíkurstelpur við 4 mörkum en við náðum að klóra í bakkann með góðu marki frá Unu. Lokatölur urðu því 6-1 og í heildina litið eru það sanngjörn úrslit en besti maður vallarins var Þórdís Benna en hún bjargaði oft með góðum leik.

...
 
© 2009 copyright Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar Strandgötu 46, 735 Eskifjörður, sími 864-8704, fax 470-1121, e-mail: kff@kff.is ARON Vefumsjónarkerfi