20 Maí, 2008 Tap í fyrsta leik hjá kvennaliði Fjarðarbyggðar/Leiknis Kvennaliðið spilaði sinn fyrsta leik í íslandsmótinu í gær og fór leikurinn fram við góðar aðstæður á Fellavelli. Staðan í hálfleik var 1-0 en Höttur skoraði fallegt mark eftir hornspyrnu undir lok fyrri hálfleiks....
19 Maí, 2008 Fyrsti leikur kvennaliðsins Kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis leikur sinn fyrsta leik í 1. deild kvenna í kvöld. Leikið verður á Fellavelli gegn Hetti kl. 20. Þetta er fyrsti leikur liðsins undir stjórn nýrra þjálfara þeirra Jóhanns Inga og Kjartans Orra. Gaman verður að sjá hvernig tekst til í frumraun þeirra en víst er að liðið leggur sig vel fram gegn Hetti í kvöld. Hvetjum við alla til að koma á leikinn og hvetja okkar lið til sigurs. Áfram Fjarðabyggð/Leiknir....
17 Maí, 2008 Fjórir leikmenn Fjarðabyggðar lánaðir Í mörg horn var að líta hjá Fjarðabyggð fimmtudaginn 15. maí á síðasta degi félagaskiptagluggans. Mörg félög höfðu samband í von um að fá lánsmenn fyrir átökin í sumar og endaði dagurinn á því að fjórir leikmenn Fjarðabyggðar voru lánaðir í þrjú önnur félög....
13 Maí, 2008 Fyrsti heimaleikurinn á Norðfjarðarvelli Leikur Fjarðabyggðar og Hauka í 1. deild karla næstkomandi sunnudag hefur verið færður á Norðfjarðarvöll þar sem Eskifjarðarvöllur er ekki leikhæfur. Þetta er fyrsti heimaleikur Fjarðabyggðar í deildinni gegn nýliðum Hauka en báðum liðum er spáð góðu gengi í sumar. Leikurinn hefst kl. 14 sunnudaginn 18. maí....
11 Maí, 2008 Fyrsti leikurinn í 1. deild Fyrsti leikur Fjarðabyggðar í 1. deild karla gegn KA verður leikinn á morgun mánudag kl. 17 í Boganum á Akureyri. Löngu undirbúningstímabili er nú lokið fyrir sumarið og Fjarðabyggð tilbúið í slaginn. Strákarnir hafa æft mjög vel síðustu mánuði og spilað á annan tug leikja í Lengjubikar sem og æfingaleiki....
09 Maí, 2008 Nýjir þjálfarar hjá kvennaliðinu Nú áðan var gengið frá ráðningu þjálfara fyrir kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis en það hefur verið þjálfaralaust undanfarnar vikur eftir að Viðar Jónsson sagði starfi sínu lausu. Þeir Jóhann Ingi Jóhannsson og Kjartan Orri Sigurðsson hafa í sameiningu tekið þetta spennandi verkefni að sér. Jóhann Ingi er frá Reyðarfirði og stundar nú nám í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ. Hann er leikmaður karlaliðs Fjarðabyggðar og hefur töluverða reynslu af þjálfun bæði í karla og kvennaflokki....