09 Júní, 2008 Fjarðabyggð - Leiknir R. Þriðjudaginn 10. júní kl. 18.30 mætast Fjarðabyggð og Leiknir R. á Eskifjarðarvelli. Við vonum að strákarnir rífi sig upp eftir tapið gegn ÍBV og sýni allar sínar bestu hliðar gegn Leikni R. Gestirnir náðu í sitt fyrsta stig í síðustu umferð þegar þeir gerðu markalaust jafntefli gegn Víkingi Ó. á heimavelli og verma botnsætið. Fjarðabyggð situr í 4. sæti með 8 stig. Fjölmennum á völlinn og hvetjum Fjarðabyggð til sigurs. Áfram Fjarðabyggð....
07 Júní, 2008 Slæmt tap í Eyjum Það var heldur dapur dagur hjá strákunum okkar í Fjarðabyggð í Vestmannaeyjum. Leikurinn byrjaði ágætlega en ÍBV var þó sterkari aðilinn og skoruðu fyrsta markið í leiknum á 42. mínútu. Staðan því 1-0 í hálfleik en fyrstu mínúturnar í seinni hálfleik breyttust í martröð því Eyjamenn bættu við tveimur mörkum á 49. og 50. mínútu. 3-0 urðu svo lokatölur leiksins og slæmt tap staðreynd....
06 Júní, 2008 ÍBV - Fjarðabyggð Fjarðabyggð heimsækir ÍBV í dag og hefst leikurinn kl. 19 á Hásteinsvelli. ÍBV er sem stendur í efsta sæti 1. deildar með fullt hús stiga eftir fjóra leiki og markatöluna 8 - 0. Fjarðabyggð er í 3. sæti með 8 stig og markatöluna 11 - 6. Ljóst er því að um mjög erfiðan útileik er að ræða en við treystum Fjarðabyggðarstrákunum til að standa sig og óskum þeim góðrar ferðar. Áfram Fjarðabyggð....
04 Júní, 2008 Magni Fannberg: Hefði frekar verið klár í KR eða HK Magni Fannberg þjálfari Fjarðabyggðar var þokkalega sáttur með að mæta FH í 32-liða úrslitum VISA-bikarsins. ,,Þetta er bara frábært, eins og ég hef sagt við alla þá er ákveðinn draumadráttur fyrir klúbbinn þótt að ég hafi átt mér persónulega einhvern draumadrátt og einhverjir leikmenn áttu sér draumadrátt en fyrir klúbbinn er þetta frábært," sagði Magni Fannberg....
04 Júní, 2008 Bikarmeistararnir austur Dregið var í 32 liða úrslit Visabikarsins nú í hádeginu í höfuðstöðvum KSÍ. Fjarðabyggð var þriðja lið upp úr pottinum og fá því heimaleik gegn bikarmeisturum FH. Dagsetning á leikinn er ekki kominn enn en annaðhvort verður leikið miðvikudaginn 18. júní eða fimmtudaginn 19. júní. Nánari fréttir síðar í dag....
Fjarðabyggð lagði í kvöld Reyðarfjörð með 17 mörkum gegn engu í Visabikarnum og hefur tryggt sér sæti í 32 liða úrslitum. Dregið verður í 32 liða úrslit á miðvikudaginn í höfuðstöðvum KSÍ. Fyrri hálfleikur hófst með látum og var staðan orðin 0-3 eftir 11 mínútna leik.