Markmið KFF er að eiga lið í efstu deild, bæði í karla og kvennaflokki. Þangað förum við með þinni hjálp!


Í hvaða sæti endar karlalið Fjarðabyggðar í 1. deild í sumar?
7.-8. sæti
9.-10. sæti
11.-12 .sæti
6. sæti eða ofar
  


Rakel Dís Björnsdóttir
15 ára
Vörn

meira
21 Júní, 2008
Fjarðabyggð-Stjarnan
Fjarðabyggð tekur á móti Stjörnunni í fyrstu deild karla á morgun sunnudag. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið, þau þurfa sigur til að halda sér í toppbaráttunni. Leikurinn er kl 14 og er á Eskifjarðarvelli....
21 Júní, 2008
Völsungur fór með 3 stig
Það var Völsungur sem fóru með 3 stig úr Fjarðarbyggðarhöllinni í dag og urðu lokatölur 1-5. Völsungur byrjaði leikinn á því að skora úr sinni fyrstu sókn en eftir það var jafnræði með liðinum....
20 Júní, 2008
Leikir um helgina

Það eru leikir hjá báðum meistaraflokkunum um helgina. Stelupurnar spila kl 14 á laugardag og fer leikurinn fram í Fjarðabyggðarhöllinni og er við Völsung. Stelpurnar hafa ekki náð að sýna sitt rétta andlit í síðustu leikjum en vonandi verður bót á því á laugardag. Þá eru strákarnir að spila við Stjörnuna og fer sá leikur fram kl 14 á sunnudag og er á Eskifjarðarvelli. Strákarnir sýndu flottan leik á móti FH í vikunni og eru til alls líklegir...

...
20 Júní, 2008
Góður leikur hjá strákunum í gær
Það var geysilega áræðið og gott Fjarðabyggðarlið sem mætti á Eskifjarðarvöll í gær og það var ekki að sjá að annað liðið væri að gera tilkall til íslandsmeistaratitils en hitt í baráttu í næstefstudeild. FHingar komust hvorki lönd né strönd í fyrri hálfleik og voru stálheppnir að komast í hálfleik með hreint mark. Guðmundu Atli fékk tvö sannkölluð dauðafæri í fyrri hálfleik en var gríðarlega óheppinn að skora ekki og jafnvel hefði mátt dæma vítaspyrnu í öðru færinu....
19 Júní, 2008
Þá er komið að því

Það verður hart tekist á í kvöld, FHingar að koma í heimsókn og þeir eru væntanlega ákveðnir í að rétta úr kútnum eftir tap gegn Breiðablik í síðustu umferð þar sem þeir misstu af toppsætinu til Keflavíkur en þar voru þeir búnir að vera allt mótið. Okkar drengir töpuðu líka síðasta deildarleik og eru því væntanlega staðráðnir í að sýna sitt rétta andlit í þessum leik.

...
17 Júní, 2008
Fjarðabyggð-FH

Fjarðarbyggð fær ríkjandi bikarmeistara FH í heimsókn á fimmtudaginn. FHingar hafa verið á góðu skriði í Landsbankadeildinni í sumar en töpuðu reyndar síðasta leik á móti Breiðablik. Þeir eru sem stendur í öðru sæti og hafa gríðarlega sterku liði á að skipa. Leikurinn er kl 19:15 og fer fram á Eskifjarðarvelli.

...
16 Júní, 2008
Elvar hættir - David tekur við

Með tilkomu David Hannah til KFF hefur Elvar Jónsson látið af störfum sem aðstoðarþjálfari.

...
15 Júní, 2008
Tap á Akureyri
Lið Fjarðabyggðar tapaði í gær 0-1 fyrir Þór á Akureyrarvelli. Framan af var leikurinn opinn og skemmtilegur en ekki náðist að setja mark í fyrri hálfleik þrátt fyrir mörg góð tækifæri....
 
© 2009 copyright Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar Strandgötu 46, 735 Eskifjörður, sími 864-8704, fax 470-1121, e-mail: kff@kff.is ARON Vefumsjónarkerfi