08 Ágúst, 2008 Sigur og 6.sæti Fjarðabyggð vann mjög mikilvægan sigur á KS/Leiftri í gærkvöldi á Ólafsfirði. Lokatölur 0-1 og skoraði markahrókurinn okkar hann Sveinbjörn markið á 10.mín beint úr aukaspyrnu. Með sigrinum komst Fjarðabyggð upp í 6. sæti deildarinnar með jafn mörg stig og KA en lakara markahlutfall. Viktor Már Jónasson spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið og kom mjög sterkur inná þegar um 25. mín voru eftir. Lið KFF: Rajkó,Haukur,David, Gummi Bjarna, Andri M, Andri H, Jóhann Ingi, Stefán, Villi, Sveinbjörn og Pétur. Viktor kom inn fyrir Villa, Fannar fyrir Pétur og Siggi fyrir Jóhann Inga. Hér má sjá ufjöllun fotbolti.net um leikinn....
08 Ágúst, 2008 jjk Er þetta annar æfingaleikur liðana yfir hátíðarnar. Eru þessir leikir upphaf undirbúningstímabils beggja félaga og snúast meira um tilraunarstarfsemi en að úrslitin verði skráð á spjöld sögunnar – þá alltaf sé kapp í mönnum. Síðast hafi Höttur sigur 2-1. Fjölmargir ungir leikmenn, sem er verið að prufa í meistaraflokki, fá þarna tækifæri til að sína sig og sanna. Væri ekki ráð að skella sér í höllina og skoða hvað er í gangi hjá félögum? Eins og menn vita eru þetta fulltrúar Austurlands í landsdeildum íslandsmótsins – Höttur í 2.deild og KFF í 1.deild. Bæði félög eiga talsvert af ungum leikmönnum og hafa margir fengið þar tækifæri á undanförnum árum og fleiri til fá einmitt tækifæri í þessum leikjum, og svo vonandi þegar í alvöruna kemur næsta sumar....