15 Desember, 2008 Fundur hjá Meistaraflokki kvenna Í dag mánudaginn 15. desember mun Páll Guðlaugsson þjálfari halda fund vegna sameiginlegs liðs Fjarðabyggðar/Leiknis í meistaraflokki kvenna. Fundastaður er í Grunnskólanum á Reyðarfirði og hefst fundurinn kl. 19. Vonandi fjölmenna leikmenn á fundinn sem og áhugasamt fólk um kvennaknattspyrnu sem gæti hugsað sér að koma að undirbúningi liðsins á komandi sumri....
12 Desember, 2008 Samningar undirritaðir Í fyrradag undirrituðu fulltrúar Leiknis og KFF samning um samstarf um rekstur á meistaraflokki kvenna og 2. flokki drengja. Samstarf verður milli félaganna um æfingar mfl. og 2. fl karla í vetur enda Páll Guðlaugsson að starfa fyrir bæði félögin....
12 Desember, 2008 Sveinbjörn ekki farinn til Grindavíkur Ekki hefur verið gengið frá kaupum úrvalsdeildarliðs Grindavíkur í knattspyrnu á Sveinbirni Jónassyni, framherja Fjarðabyggðar eins og fullyrt var í Morgunblaðinu í morgun. Bjarni Ólafur Birkisson, stjórnarformaður KFF, sagði í samtali við Austurgluggann að fréttin, um að leikmaðurinn hefði skrifaði undir samning við UMFG, væri úr lausu lofti gripin. „Starfsmenn Morgunblaðsins vita meira en við.“...
11 Desember, 2008 Tap í æfingaleik Sameiginlegt lið 2. flokks Fjarðabyggðar/Leiknis tapaði í gær 2-3 gegn 2. flokksliði Hattar. Leikið var í Fjarðabyggðarhöllinni í 3x30 mínútur. 4 mörk voru skoruð í 1. leikhluta og skoraði Höttur þrjú þeirra og virtust okkar menn ekki alveg vera nógu samstilltir í byrjun. Ágúst Örn Arnarson skoraði mark okkar manna. Ekkert var svo skorað í nokkuð jöfnum 2. leikhluta en í 3. leikhluta voru okkar menn betri og fengu þó nokkur góð færi en aðeins eitt mark leit dagsins ljós þegar Adnan skoraði út víti. Lokatölur því 2-3....
Núna síðdegis skrifaðiSrdjan Rajkovic undir nýjan samning til eins árs.Rajkó er leikjahæsti leikmaður KFF frá upphafi. Hann hefur varið mark liðsins í 147 leikjum í deild og bikar frá því 2001 þegarfélagið var stofnað. Hann hefur verið valinn leikmaður ársins hjá félaginu tvisvar, 2005 og 2007. Hann var markmaður ársins og í liði ársins í 1.deildinni árið 2007.
06 Desember, 2008 Fjarðabyggð vann Leikni F. Í gær föstudaginn 5. desember mættust Fjarðabyggð og Leiknir F. í æfingaleik í Fjarðabyggðarhöllinni. Skemmst er frá því að segja að Fjarðabyggð vann sannfærandi sigur 7-0 en marga lykilmenn vantaði í bæði lið. Mörkin skoruðu Ágúst Örn Arnarson 4, Pétur Geir Svavarsson 2 og Stefán Þór Eysteinsson 1. Glæsilegt hjá strákunum....
01 Desember, 2008 Bjössi æfir með úrvalsdeildarliðum Sveinbjörn Jónasson hefur undanfarið verið að æfa með úrvalsdeildarliðum á höfuðborgarsvæðinu. Hann skoraði m.a með Val á móti Þrótti R. Er þetta allt gert í góðu samráði við stjórn KFF enda Bjössi samningsbundinn út árið 2009....