Fyrri leikur helgarinnar gegn Völsungi fór fram í gærkvöld. KFF sigraði 4-1. Staðan í hálfleik var 3-0. Liðið eigast aftur við kl.11:00 á sunnudagsmorgun.
13 Febrúar, 2009 Drög að niðurröðun leikja í meistaraflokki karla og kvenna Mótanefnd KSÍ hefur birt drög að niðurröðun leikja í landsdeildum meistaraflokka karla og kvenna sem og að dregið hefur verið í forkeppni VISA bikars karla og kvenna. Vakin er athygli á nýju fyrirkomulagi í 1. deild kvenna en í ár leika 12 félög í tveimur riðlum. Eftir riðlakeppnina fara fjögur efstu lið hvors riðils í átta liða úrslitakeppni....
13 Febrúar, 2009 Dregið hefur verið í forkeppni VISA bikars karla og kvenna Dregið hefur verið í forkeppni VISA bikars karla og kvenna og má sjá dráttinn hér á síðunni. Margir spennandi leikir eru á dagskránni en mörg ný og forvitnileg nöfn taka þátt í VISA bikar karla....
Aðalfundur Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar verður haldinn mánudaginn 16. febrúar kl. 20 í Grunnskólanum á Reyðarfirði. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag og rekstri þess á liðnu ári. 2. Efnahags- og rekstrarreikningur lagðir fram til samþykktar. 3. Stjórn félagsins kjörin ásamt endurskoðendum. 4. Önnur mál.
07 Febrúar, 2009 Sigur gegn Huginn Fjarðabyggð lagði í dag Huginn í æfingaleik 5-1 í Fjarðabyggðarhöllinni. Ískalt var í höllinni en leikurinn var fínn og átti Fjarðabyggð margar góðar sóknir. Jóhann Ragnar Benediktsson skoraði fyrsta mark okkar og skömmu seinna bætti stormsenterinn Andri Hjörvar Albertsson við öðru marki. Ágúst Örn Arnarsson skoraði síðan tvívegis áður en Grétar Örn Ómarsson(Torres) bætti við fimmta markinu....