01 Apríl, 2009 Fyrsti heimaleikurinn í Lengjubikarnum Föstudaginn 3. apríl kl. 20 mætast Fjarðabyggð og Höttur í B-deild Lengjubikars karla. Leikið verður í Fjarðabyggðarhöllinni og er aðgangur ókeypis. Nú er um að gera að mæta á völlinn og styðja strákana til sigurs. Áfram Fjarðabyggð....
31 Mars, 2009 Ekki ólöglegur leikmaður Nú er aftur búið að breyta úrslitum í leik Völsungs og Fjarðabyggðar í Lengjubikarnum sem leikinn var sunnudaginn 22. mars. Í fyrri frétt sögðum við frá að búið væri að dæma Fjarðabyggð 0-3 sigur í hag þar sem Völsungur notaði ólöglegan leikmann. Nú hefur þessu verið breytt aftur með þeim rökum að leikmaðurinn hafi allan tímann verið á varamannabekknum og því ekki haft áhrif á úrslit leiksins. Upphafleg úrslit standa því en Fjarðabyggð vann leikinn 1-2....
Úrslitum í leik Völsungs og Fjarðabyggðar í Lengjubikarnum hefur verið breytt en leikið var síðastliðinn sunnudag og endaði leikurinn með 1-2 sigri Fjarðabyggðar. Þar sem Völsungur notaði ólöglegan leikmann þá hefur úrslitum leiksins verið breytt í 0-3 sigur Fjarðabyggðar skv. reglugerð Knattspyrnusambandsins.
22 Mars, 2009 Sigur á Völsungi Fjarðabyggð lagði Völsung 2-1 í Boganum á Akureyri í B deild Lengjubikars karla nú í kvöld. Ágúst Örn Arnarson skoraði bæði mörk Fjarðabyggðar en staðan í leiknum var 1-1 í hálfleik. Skoða má öll úrslit og leiki í okkar riðli Lengjubikarsins hér neðar á síðunni vinstra megin....
21 Mars, 2009 Annar leikur í Lengjubikar Á morgun sunnudaginn 22. mars spilar Fjarðabyggð sinn annan leik í B-deild Lengjubikarsins. Andstæðingarnir nú eru Völsungur en þeir hafa marga unga og spræka stráka. Leikið verður í Boganum á Akureyri og hefst leikurinn kl. 18.00. Fyrsti heimaleikurinn verður síðan gegn Hetti 3. apríl....
Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar og Umf Leiknir Fáskrúðsfirði auglýsa eftir þjálfara, má vera spilandi sem getur hafið störf sem fyrst með meistaraflokk kvenna. Meistaraflokkur kvenna Fjarðabyggð/Leiknir kemur til með að leika í 1.deild a riðli í sumar.
15 Mars, 2009 Jafntefli í fyrsta leik Magni og Fjarðabyggð gerðu í dag jafntefli 2-2 í fyrsta leik liðanna í B-deild Lengjubikarsins. Sigurður Donys Sigurðsson kom Fjarðabyggð yfir á 44.mín með góðu vinstrifótarskoti fyrir utan teig. Magni gerði svo tvö mörk áður en Jóhann Ragnar Benedikstsson jafnaði úr vítaspyrnu í blálokin. Lið Fjarðabyggðar virkaði ósannfærandi í leiknum og verður að gera betur gegn Völsungi um næstu helgi en þá verður einnig leikið í Boganum á Akureyri....
14 Mars, 2009 Lengjubikarinn hefst Á morgun sunnudaginn 15. mars spilar Fjarðabyggð sinn fyrsta leik í B-deild Lengjubikarsins. Andstæðingarnir í fyrsta leik eru Magni Grenivík en skammt er síðan spilaðir voru 2 æfingaleikir við þá í Fjarðabyggðarhöllinni sem unnust báðir nokkuð örugglega. Leikið verður í Boganum á Akureyri og hefst leikurinn kl. 15.15. Áfram Fjarðabyggð....