22 Júní, 2009 Fylkir - Fjarðabyggð í Visabikarnum Í hádeginu var dregið í 16 liða úrslit Visabikars karla. Fylkir og Fjarðabyggð drógust saman en leikið verður á Fylkisvelli sunnudaginn 5. júlí kl. 14. Verðugt verkefni er því framundan hjá strákunum enda hefur Fylkir staðið sig vel það sem af er í Pepsideildinni. Fjarðabyggð mun þó án efa veita Fylki harða keppni enda liðið taplaust í síðustu 7 leikjum og þar af eru 6 sigrar....
22 Júní, 2009 Fjarðabyggð/Leiknir/Huginn - Grindavík/Njarðvík Í dag mánudaginn 22. júní kl. 16 mætast 2. flokks lið Fjarðabyggðar/Leiknis/Hugins og Grindavíkur/Njarðvíkur á Eskifjarðarvelli. Athugið að þetta er breyttur leiktími því upphaflega átti leikurinn að fara fram kl. 20. Bæði liðin eru með 4 stig fyrir leikinn í 3.-4. sæti deildarinnar....
19 Júní, 2009 Fjarðabyggð - HK Fjarðabyggð og HK mætast í 7. umferð 1. deildar karla Sunnudaginn 21. júní kl. 14 á Eskifjarðarvelli. Fjarðabyggð hefur gengið vel í síðustu leikjum og er í 5. sæti deildarinnar með 10 stig. HK er með 11 stig í 3. sæti. Hart verður því barist til sigurs í leiknum og stuðningur áhorfenda mikilvægur sem aldrei fyrr. Allir á völlinn og höfum gaman saman. Áfram Fjarðabyggð....
17 Júní, 2009 VISA-bikarinn: Fjarðabyggð áfram eftir sigur á Haukum Haukar 0 - 1 Fjarðabyggð 0-1 Jóhann Ragnar Benediktsson ('102)
Fjarðabyggð komst í dag í 16 liða úrslit bikarsins eftir sigur á Haukum á Ásvöllum í dag. Ekki er hægt að segja að sigurinn hafi verið sanngjarn en Haukar réðu gangi leiksins frá upphafi til enda....
17 Júní, 2009 Visabikarinn Haukar - Fjarðabyggð 32 liða úrslit Visabikars karla hefjast með leik Hauka og Fjarðabyggðar á sjálfan Þjóðhátíðardaginn 17. júní. Leikið er að Ásvöllum í Hafnarfirði og hefst leikurinn kl. 12.30. Stutt er síðan liðin mættust á þessum velli í deildinni en þá höfðu Haukar betur 3-1. Vonandi standa okkar strákar sig betur og leggja Haukana að velli og tryggja sér um leið sæti í 16 liða úrslitum Visabikarsins. Áfram Fjarðabyggð....
16 Júní, 2009 Jafntefli á Seyðisfirði Sameiginlegt lið Fjarðabyggðar/Leiknis/Hugins gerði í kvöld 1-1 jafntefli gegn Fjölni 2 á Seyðisfjarðarvelli. Mark okkar manna skoraði Björgvin Stefán Pétursson en Fjölnir náði að jafna og þar við sat....
16 Júní, 2009 Fjarðabyggð/Leiknir/Huginn - Fjölnir 2 Í kvöld kl. 20 mætast Fjarðabyggð/Leiknir/Huginn og Fjölnir í íslandsmóti 2. flokks karla á Seyðisfjarðarvelli. Okkar sameiginlega lið er í 4. sæti deildarinnar með 3 stig eftir 2 leiki en Fjölnir 2 er neðstur með ekkert stig eftir 1 leik. Fjölmennum nú á leikinn og styðjum strákana okkar....