08 Júlí, 2009 2.flokkur fer til eyja Það er stór helgi framundan hjá karlaliðum KFF. 2.flokkur leikur tvo leiki um helgina við IBV í eyjum. Leikirnir eru kl.12:00 á laugardag og sunnudag. Meistaraflokkur mætir svo Leikni R í 1.deildinni á föstudagskvöld kl.20:00. Nánar um næstu leiki hér til hægri á síðunni....
04 Júlí, 2009 Fylkir - Fjarðabyggð Sunnudaginn 5. júlí kl. 20 mætast Fylkir og Fjarðabyggð á Fylkisvelli í 16 liða úrslitum Visabikars karla. Fylkisliðið er gríðarlega öflugt um þessar mundir og er sem stendur í 4. sæti Pepsideildarinnar með 20 stig líkt og Stjarnan sem er í 3. sæti einnig með 20 stig en betri markatölu. KR vermir annað sætið með 21 stig en hefur leikið einum leik fleira en Fylkir og Stjarnan....
03 Júlí, 2009 Frábærir stuðningsmenn Það sýndi sig vel í gærkvöldi á leik Fjarðabyggðar og Þórs að Fjarðabyggð á bestu stuðningsmenn á landinu og þó víðar væri leitað. Vaskur hópur manna mætir á hvern einasta heimaleik og styður Fjarðabyggðarliðið af myndarbrag. Þeir eru nú komnir á það stig að virkja aðra áhorfendur með sér og tókst það vel í gær og tóku margir undir. Einnig var mörkum fagnað af miklum glæsileika enda vanir menn á ferð og mikið að gleðjast yfir. Þessi fríði hópur kallar sig Elítan og þykir það nafn vel við hæfi enda föngulegir menn....
02 Júlí, 2009 Fjarðabyggð - Þór kl.20:00 í kvöld Nú mæta allir á völlinn í góða veðrinu og skemmta sér konunglega með nýju stuðsveitini og strákunum okkar. Í fyrradag kom umfjöllun hér á síðunni um tölfræði í leikjum KFF og Þórs hingað til. Á heimasíðu Þórs er líka farið yfir þá tölfræði og fleira og kemur sú umfjöllun hér......
Við bendum á leiktíma í bikarleik Fylkis og Fjarðabyggðar í 16-liða úrslitum VISA-bikarsins. Leikurinn verður kl.20:00 á sunnudagskvöldið á Fylkisvelli. Fylkir er sem stendur í 2.sæti úrvalsdeildar.