13 Júlí, 2009 Ítrekun Við viljum minna enn og aftur á frestun á leiknum á morgun og vitnum til fréttar hér á síðunni frá því á föstudaginn - 10.júlí....
Seinni leikur ÍBV/KFS og Fjarðabyggðar/Leiknis/Hugins í 2. flokki karla fór fram í dag í Vestmannaeyjum. Heimamenn unnu okkar lið 4-2 og skoraði Ævar Valgeirsson bæði mörkin. ÍBV/KFS er á toppi C-riðils í 2. flokki karla með fullt hús stiga eftir 5 leiki eða 15 stig. Fjarðabyggð/Leiknir/Huginn er í 5. sæti af 7 liðum með 4 stig.
Sameiginlegt lið Fjarðabyggðar/Leiknis og Hugins tapaði í dag 3-2 gegn ÍBV/KFS í Íslandsmóti 2. flokks karla. Að sögn heimildarmanna var um hörkuleik að ræða og skoruðu Tadas og Björgvin mörk okkar manna. Sömu lið eigast aftur við á morgun sunnudag og þá ætla strákarnir að vinna.
10 Júlí, 2009 Frestun á leiknum við Víking Ó. Knattspyrnusamband Íslands frestaði í dag leik Fjarðabyggðar og Víkinga frá Ólafsvík sem átti að leika þriðjudaginn 14. júlí kl. 18.30 á Eskifjarðarvelli. Þetta er vegna verkefna hjá U-18 landsliði karla. Nýr leikdagur hefur verið ákveðinn þriðjudaginn 21. júlí kl. 18.30. Frestast sem sagt um viku....
08 Júlí, 2009 Breiðholtið er næsti viðkomustaður Fjarðabyggð sækir Leikni R heim í 10 umferð 1.deildar á föstudagskvöld - kl.20:00. KFF er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar með 16 stig er Leiknir er með 12 stig í 7.sæti. Leiknir hefur unnið síðustu þrjá leiki í deildinni og KFF aðeins tapað einum af síðustu sjö. KFF hefur ekki gengið vel með Leikni í síðustu leikjum....
08 Júlí, 2009 2.flokkur fer til eyja Það er stór helgi framundan hjá karlaliðum KFF. 2.flokkur leikur tvo leiki um helgina við IBV í eyjum. Leikirnir eru kl.12:00 á laugardag og sunnudag. Meistaraflokkur mætir svo Leikni R í 1.deildinni á föstudagskvöld kl.20:00. Nánar um næstu leiki hér til hægri á síðunni....