07 Ágúst, 2010 Umfjöllun: Grótta vann fallbaráttuslaginn
- Gunnar Þorbergur Gylfason skrifar frá Seltjarnarnesi
Grótta 3 - 1 Fjarðabyggð: 1-0 Viggó Kristjánsson 1-1 Fannar Árnason 2-1 Daniel Howell 3-1 Daniel Howell
Grótta og Fjarðabyggð mættust á Gróttuvelli nú fyrr í dag. Fyrir leikinn var Grótta með 13 stig í 10. sæti deildarinnar en Fjarðabyggð með 11 stig í 11. sæti. Leikurinn í dag var því einkar mikilvægur enda bæði lið að reyna að forðast fall.
Það verður líf og fjör um helgina hjá öllum liðum Fjarðabyggðar enda fara fram 5 leikir frá föstudegi til sunnudags og allir í Reykjavík. Veislan hefst á föstudag kl. 20 með viðureign Fram og Fjarðabyggðar/Leiknis í mfl. kvenna. Á laugardag leikur karlaliðið við Gróttu kl. 14 og síðan leikur 2. flokkur við Aftureldingu seinna um daginn. Á sunnudag mætast Fjölnir og Fjarðabyggð/Leiknir í 1. deild kvenna kl. 14 og á sama tíma leikur 2. flokkur gegn Leikni/KB.
Sandor Zoltan Forizs er genginn til liðs við Fjarðabyggð og hefur þegar fengið leikheimild með sínu nýja félagi. Hann kemur til félagsins frá Samherjum sem leika í 3. deildinni en þangað hafði hann komið frá KA fyrir tímabilið og lék þar sjö leiki í deild og bikar og skoraði eitt mark. Sandor er reyndur varnarmaður frá Ungverjalandi en hann lék fimmtán leiki í fyrstu deildinni síðastliðið sumar. Sandor kom hingað til lands árið 2003 og lék þá með Leiftur/Dalvík en hann hefur einnig leikið með KS/Leiftri hér á landi.
27 Júlí, 2010 Fjarðabyggð - Þróttur Fjarðabyggð mætir Þrótti Reykjavík í 1. deild karla á Eskifjarðarvelli miðvikudaginn 28. júlí kl. 18.30. Gengi beggja liða hefur valdið vonbrigðum í sumar en eftir 13 umferðir af 22 er Þróttur í 8. sæti með 14 stig og -7 mörk en Fjarðabyggð í því ellefta með 11 stig og -9 mörk. Hvetjum við alla að mæta á völlinn á morgun og hvetja Fjarðabyggð til sigurs í þessum mikilvæga leik. Látum nú heyra í okkur og áfram Fjarðabyggð....
26 Júlí, 2010 2. flokkur lék tvo leiki um helgina Sameiginlegt lið Fjarðabyggðar/Leiknis/Hugins í 2. flokki tapaði á laugardag fyrir Breiðablik 2-0 í Kópavogi. Á sunnudagskvöld mættu þeir svo toppliði Gróttu og endaði leikurinn með jafntefli 2-2. Liðið er sem stendur í 2. sæti með 20 stig eftir 10 leiki en Grótta á toppnum með 25 stig....
Veislan hefst á leik ÍA og Fjarðabyggðar á Akranesvelli kl. 20 föstudaginn 23. júlí. Skagamenn eru í 6. sæti með 16 stig en Fjarðabyggð er í 10. sæti með 11 stig nú þegar mótið er rétt rúmlega hálfnað.
2. flokkur spilar við Breiðablik 2 á Smárahvammsvelli kl. 14 laugardaginn 24. júli og síðan við Gróttu á Gróttuvelli kl. 20 sunnudaginn 25. júlí. Fjarðabyggð/Leiknir/Huginn er sem stendur í 3. sæti deildarinnar og á góðan möguleika að komast upp í næstefstu deild.