Markmið KFF er að eiga lið í efstu deild, bæði í karla og kvennaflokki. Þangað förum við með þinni hjálp!


Í hvaða sæti endar karlalið Fjarðabyggðar í 1. deild í sumar?
7.-8. sæti
9.-10. sæti
11.-12 .sæti
6. sæti eða ofar
  


Hafrún Sigurðardóttir
19 ára
Vörn

meira
12 September, 2009
1.deild umfjöllun: Þrjú stig til Fjarðabyggðar eftir andlausan leik

Pjetur St. Arason skrifar frá Eskifirði 

Fjarðabyggð 1 - 0 Leiknir R.
1-0 Jóhann Ragnar Benediktsson ('43)
Lið Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar lagði Leiknismenn úr Reykjavík á Eskifjarðarvelli í dag með einu marki gegn engu. Fjarðabyggðarliðið getur náð sínum besta árangri til þessa í fyrstu deild með því að leggja Víkinga í Ólafsvík að velli í síðustu umferðinni.

...
12 September, 2009
Liðsmyndin 2009 er komin
Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar 2009

Smellið á nánar

...
10 September, 2009
Fjarðabyggð - Leiknir R.
Fjarðabyggð og Leiknir R. mætast kl. 14 á laugardag á Eskifjarðarvelli. Þetta er síðasti heimaleikur sumarsins en mikið húllumhæ verður á Eskifirði því yngri flokkar halda sitt slútt fyrir leik. Fannar Árnason verður í leikbanni í þessum leik en annars eru allir strákarnir tilbúnir í leikinn. Við hvetjum alla til að mæta og hvetja Fjarðabyggð til sigurs. Lítum á viðureignir þessara liða undanfarin ár...
08 September, 2009
Alcoadagurinn og slútt yngri flokka
Yngri flokkar Fjarðabyggðar/Leiknis hafa nú lokið öllum leikjum sínum í sumar og vill stjórn Fjarðabyggðar/Leiknis í samstarfi við stjórn KFF og Alcoa enda sumarið á grillpartýi og skemmtilegheitum fyrir alla krakka sem hafa verið að æfa fótbolta í sumar í Fjarðabyggð, laugardaginn 12. september á Eskifjarðarvelli. Farið verður í ýmsa leiki s.s. knattþrautir, fótbolti og sund. Leikmenn meistaraflokks Fjarðabyggðar, karla og kvenna og 2. flokkur karla munu sjá um að stýra leikjum og grilla fyrir börnin. Gleðin byrjar klukkan 11.00 og henni lýkur með leik Fjarðabyggðar og Leiknis R. í 1. deild karla. Síðasti heimaleikur Fjarðabyggðar í sumar. Fjarðabyggð/Leiknir, Alcoa og KFF....
04 September, 2009
Draumurinn úti
Fjarðabyggð á ekki lengur möguleika á að komast í efstu deild eftir 1-0 tap gegn Þór á Akureyri í hörkuleik. Þór komst yfir í fyrri hálfleik með marki Jóhanns Helga Hannessonar en klárlega var um rangstöðu að ræða en markið stóð. Fjarðabyggð missti síðan Fannar Árnason af velli á 37. mínútu með rautt spjald og róðurinn því erfiður. Lokatölur því 1-0 fyrir Þór en enn eru 2 leikir eftir og Fjarðabyggð í 4. sæti. Besti árangur Fjarðabyggðar hingað til er 5. sæti í 1. deild og því enn að miklu að keppa í lokaleikjunum. En lítum á umfjöllun fotbolta.net...
03 September, 2009
Þór - Fjarðabyggð
Þór og Fjarðabyggð mætast föstudaginn 4. september kl. 18.30 á Þórsvelli. Leikurinn er liður í 20. umferð í 1. deild karla en fyrri leik liðanna á Eskifjarðarvelli lauk með sigri Fjarðabyggðar 2-0 og skoruðu Grétar og Högni mörkin. Þór er í 7. sæti deildarinnar með 25 stig en Fjarðabyggð í 4. sæti með 32 stig. En lítum á innbyrðisviðureignir síðustu ára...
03 September, 2009
2. flokks leikur á laugardag
Sameiginlegur 2. flokkur karla Fjarðabyggðar/Leiknis/Hugins tekur á móti Tindastól laugardaginn 5. september. Leikið verður á Búðagrund Fáskrúðsfirði og hefst leikurinn kl. 14.30. Endilega kíkið á völlinn og sjáið strákana spreyta sig gegn Tindastól en þess má geta að fyrri leik liðanna lauk með sigri Tindastóls 2-1....
30 Ágúst, 2009
1.deild umfj.: Selfyssingar skrefi nær Pepsi-deildinni

Fjarðabyggð 0-4 Selfoss
0-1 Arilíus Marteinsson ('14)
0-2 Henning Eyþór Jónasson ('44)
0-3 Ingþór Jóhann Guðmundsson ('62)
0-4 Agnar Bragi Magnússon ('65)

...
 
© 2009 copyright Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar Strandgötu 46, 735 Eskifjörður, sími 864-8704, fax 470-1121, e-mail: kff@kff.is ARON Vefumsjónarkerfi