Markmið KFF er að eiga lið í efstu deild, bæði í karla og kvennaflokki. Þangað förum við með þinni hjálp!


Í hvaða sæti endar karlalið Fjarðabyggðar í 1. deild í sumar?
7.-8. sæti
9.-10. sæti
11.-12 .sæti
6. sæti eða ofar
  


Una Sigríður Jónsdóttir
30 ára
Sókn

meira
18 Desember, 2009
Fjarðabyggð-Höttur
Í kvöld kl. 19 mætast Fjarðabyggð og Höttur í æfingaleik. Um er að ræða meistaraflokk karla og leikið er í Fjarðabyggðarhöllinni. Eftir þennan leik verður svo tekið jólafrí og hefjast æfingar hjá meistaraflokki karla aftur þann 6. janúar. Komið og fylgist með ef þið hafið tök á. Áfram Fjarðabyggð....
17 Desember, 2009
Drög að niðurröðun Lengjubikarsins 2010
Mótanefnd KSÍ hefur gefið út drög að niðurröðun leikja í Lengjubikarnum 2010 en leikið er í þremur deildum í karla- og kvennaflokki.  Hægt er að nálgast niðurröðunina hér á vefnum en karlalið Fjarðabyggðar leikur í A deild riðli 1 og kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis leikur í C deild riðli 2....
14 Desember, 2009
Staðan í hópleik getrauna
Eftir 8. viku af 10 í hópleik getrauna heldur Epro efsta sætinu með 75 rétta. Mónes er í 2. sæti með 74 rétta og Bandit í því þriðja með 70 rétta. Í 4.-5. sæti með 67 rétta eru Bítlarnir og Timburmenn. Munið að getraunaþjónustan er alltaf opin á laugardögum frá kl. 11-13 á efri hæð í Sigfúsarhúsi Neskaupstað. Merkjum líka alltaf við félagsnúmer 740 þegar við tippum í sölukössum...
13 Desember, 2009
Deildarbikarkeppni KSÍ 2010 - Riðlaskiptingin er klár
Mótanefnd KSÍ hefur gefið út riðlaskiptingu og fyrirkomulag Deildarbikarkeppni KSÍ árið 2010. Leikið er í þremur deildum, jafnt í körlum og konum. Riðlaskptinguna má sjá hér að neðan sem og mótfyrirkomulagið....
10 Desember, 2009
Þjálfaranámskeið á Reyðarfirði
Auglýst er eftir þátttakendum sem hafa áhuga á að taka þjálfaranámskeið KSÍ III á Reyðarfirði eftir áramót. Þátttaka þarf að tilkynnast með e-maili á stefanm@skolar.fjardabyggd.is eða SMS í síma 864-1625, með nafni og símanúmeri viðkomandi. Forskráning þar að komast á hreint fyrir 21. desember næstkomandi....
07 Desember, 2009
Staðan í hópleik getrauna
Eftir 7. viku af 10 í hópleik getrauna heldur Epro efsta sætinu með 67 rétta. Mónes er í 2. sæti með 66 rétta og Bandit í því þriðja með 63 rétta. Í 4. sæti með 61 rétta eru Bítlarnir og Timburmenn skipa 5. sætið með 59 rétta. Munið að getraunaþjónustan er alltaf opin á laugardögum frá kl. 11-13 á efri hæð í Sigfúsarhúsi Neskaupstað. Merkjum líka alltaf við félagsnúmer 740 þegar við tippum í sölukössum...
06 Desember, 2009
Eggert skoraði í tapleik Hearts
Eggert Gunnþór Jónsson skoraði mark Hearts um helgina þegar liðið tapaði fyrir Hamilton á útivelli, 2:1, í skosku úrvaldeildinni í knattspyrnu. Eggert minnkaði muninn á 39. mínútu leiksins. Tveir leikmenn Hearts voru reknir af leikvelli í seinni hálfleik. Sá fyrri fauk útaf á 49. mínútu og sá seinni á 84. mínútu. Þetta er annar leikurinn í röð sem Eggert skorar en hann hefur spilað báða þessa leiki á miðjunni í stað varnar fram að þessu....
30 Nóvember, 2009
Staðan í hópleik getrauna
Eftir 6. viku af 10 í hópleik getrauna hefur Epro náð efsta sætinu með 58 rétta. Mónes er nú í 2. sæti með 57 rétta og Bandit í því þriðja með 54 rétta. Í 4.-5. sæti með 51 rétta eru hóparnir Timburmenn og Bítlarnir. Munið að getraunaþjónustan er alltaf opin á laugardögum frá kl. 11-13 á efri hæð í Sigfúsarhúsi Neskaupstað. Merkjum líka alltaf við félagsnúmer 740 þegar við tippum í sölukössum...
 
© 2009 copyright Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar Strandgötu 46, 735 Eskifjörður, sími 864-8704, fax 470-1121, e-mail: kff@kff.is ARON Vefumsjónarkerfi