04 Janúar, 2010 Skrifað undir samstarfssamning Um daginn skrifuðu fulltrúar KFF og Leiknis undir samning um áframhaldandi sameiginlegt lið í meistaraflokki kvenna. Stefnt er að því að styrkja liðið. Kjarninn í liðinu verður áfram og ljóst að sterkar stelpur bætast í hópinn fyrir næsta tímabil. Einnig er stefnt að því að bæta og auka umgjörðina um liðið. Páll Guðlaugsson verður áfram þjálfari meistaraflokks kvenna....
30 Desember, 2009 Andri Hjörvar gerir 2 ára samning Í dag skrifaði Andri Hjörvar Albertsson undir 2 ára samning við Fjarðabyggð. Þetta eru frábærar fréttir fyrir alla hjá Fjarðabyggð því Andri hefur verið einn lykilmanna liðsins undanfarin ár. Andri kom til liðsins vorið 2006 en það ár vann Fjarðabyggð 2. deild og Andri var valinn í lið ársins sem og besti leikmaður Fjarðabyggðar það ár. Andri hefur spilað 91 leik fyrir Fjarðabyggð í deild og bikarkeppni síðustu fjögur ár. Tveir ungir leikmenn skrifuðu einnig undir samninga við Fjarðabyggð nú nýlega eða þeir Adnan Mesetovic og Hilmar Freyr Bjartþórsson en þeir hafa síðustu ár spilað með Leikni Fáskrúðsfirði. Til hamingju strákar....
30 Desember, 2009 Íþróttamaður Fjarðabyggðar 2009 Jóhann Ragnar Benediktsson eða Jói Ben var í dag (29.12.09) kosinn íþróttamaður Fjarðabyggðar. Jói byrjaði að spila fótbolta sex ára með Austra og spilaði alla yngri flokkana hér en fór þá suður og spilaði m.a. með Keflavík. Hann var einn af lykilmönnum KFF í sumar en liðið hefur aldrei áður náð eins góðum árangri og í sumar. Jói var markahæstur í KFF, hann var valin í lið ársins í 1.deild og var í eitt skipti í sumar valin leikmaður umferðarinnar í 1.deild. Til hamingju Jói....
28 Desember, 2009 Firmakeppni KFF Verður haldin miðvikudaginn 30. desember í íþróttahúsinu Neskaupstað og hefst klukkan 16. Leikreglur eru þær sömu, eldgömlu, nema að það má kasta yfir miðju. 2 leikmenn eru leyfðir í hverju liði sem eiga leik á vegum KSÍ í Úrvals, 1. eða 2. deild. Mótsgjald er kr. 10.000. Skráning í mótið er í síma 847-8461(Ingi Steinn) og 867-9108(Haukur Ingvar)....
Fjarðabyggð hefur borist góður liðsauki því í dag skrifaði Rafn Heiðdal undir 2 ára samning. Rafn kemur frá Hetti þar sem hann hefur spilað síðustu ár en er uppalinn hjá Neista Djúpavogi eins og svo margir góðir knattspyrnumenn. Rafn er 22 ára og hefur spilað 132 leiki bæði í 3. deild og síðustu ár í 2. deild en Rafn spilar bæði í vörn og á miðju. Við bjóðum Rafn velkominn í Fjarðabyggð.
22 Desember, 2009 Ingi Steinn gerir nýjan tveggja ára samning Ingi steinn Freysteinsson hefur gert nýjan tveggja ára samning við KFF. Hann átti ár eftir af fyrri samning. Þetta er mikið ánægju efni enda hefur Ingi verið einn traustasti leikmaður KFF um áraraðir en hann byrjaði ungur að spila með meistaraflokki árið 2003 - þá aðeins 16 ára. Ingi, sem er 23 ára, hefur aðallega leikið í stöðu vinstri bakvarðar en getur einnig leikið framar á vellinum. Ingi lék 19 af 22 deildarleikjum KFF síðastliðið tímabil og hefur alls leikið 121 deildarleik fyrir félagið og skorað í þeim 15 mörk. Aðeins tveir leikmenn hafa leikið fleiri leiki fyrir félagið - Haukur og Rajkó. ...
20 Desember, 2009 Leikmannamál i fullum gangi - þó lítið fréttist Lítið hefur verið að frétta af leikmannamálum KFF undanfarið. Það er þó þannig að í vetur hafa nokkrir ungir leikmenn samið við félagið - alls fimm ungir strákar sem uppaldir eru í félögunum hér í Fjarðabyggð. Enda er það stefna félagsins að byggja fyrst og fremst upp á upplöldum leikmönnum eða leikmönnum af Austurlandi - eins og frekast er kostur. Engin leikmaður hefur yfirgefið félagið nema þeir lánsmenn sem voru hjá félaginu í sumar. Nánar verður fjallað um þessa ungu leikmenn sem hafa samið við félagið síðar og önnur mál enda eru frekari fréttir af leikmannamálum væntanlegar. Einnig er verið að vinna í leikmannamálum kvennaliðs KFF/Leiknis. Þannig að ef einhver heldur að ekkert sé að gerast í leikmannamálum KFF, vegna þess að ekkert kemur um þau hér á síðunni, þá er ekki svo. Stjórn KFF vill hins vegar ekkert gefa út fyrr en þau mál sem verið er að vinna í eru í höfn og eins að nota þá tækifærið og kynna okkar ungu leikmenn - svo þeirra samningamál fái enn meiri athygli....
19 Desember, 2009 Góður sigur á Hetti Fjarðabyggð vann góðan sigur á Hetti í æfingaleik í Fjarðabyggðarhöllinni í gær. Leikið var í 3x30 mínútur og skoraði Fjarðabyggð eitt mark í hverjum leikhluta og lokatölur því 3-0. Margir ungir leikmenn fengu að spreyta sig og áttu allir fínan leik sem og reynsluboltarnir Andri Hjörvar, Haukur, Ingi Steinn, Rajko og Grétar. Adnan Mesetovic skoraði tvö mörk og Hákon Sófusson eitt....