
Fjarðabyggð mætir ÍR í 1. deild karla á Eskifjarðarvelli föstudaginn 13. ágúst kl. 18.30. ÍR er sem stendur í 4. sæti deildarinnar með 26 stig en Fjarðabyggð í 11. sæti með 11 stig. Það er því á brattann að sækja fyrir Fjarðabyggð en stuðningsmenn virka oft sem 12. maður og hvetjum við alla að mæta og styðja strákana til sigurs.
2. flokkur leikur síðan gegn Tindastól/HKL á Seyðisfjarðarvelli á sunnudag kl. 14 en liðið er nú í baráttu um 2 efstu sætin í deildinni sem tryggir sæti í næstefstu deild 2. flokks.
Á mánudag leikur síðan kvennaliðið síðasta leik sumarsins gegn Hetti á Vilhjálmsvelli og hefst leikurinn kl. 19. Mætum öll og þökkum kvennaliðinu fyrir góðan árangur í sumar.
...