Markmið KFF er að eiga lið í efstu deild, bæði í karla og kvennaflokki. Þangað förum við með þinni hjálp!


Í hvaða sæti endar karlalið Fjarðabyggðar í 1. deild í sumar?
7.-8. sæti
9.-10. sæti
11.-12 .sæti
6. sæti eða ofar
  


Sigríður Ásdís Jónsdóttir
33 ára


meira
17 Febrúar, 2010
Fyrsti leikurinn í Lengjubikarnum
Fjarðabyggð og Þór Akureyri mætast í fyrsta leik A-deildar riðli 1 í Fjarðabyggðarhöllinni á laugardag. Leikurinn hefst kl. 14 og er aðgangur ókeypis. Nú skulum við öll mæta og styðja strákana okkar í þessum slag. Áfram Fjarðabyggð....
13 Febrúar, 2010
Fjarðabyggð vann Síldarvinnslumótið
Hópurinn í dag

Fjarðabyggð vann Hött 3-1 í úrslitaleik Síldarvinnslumótsins í Fjarðabyggðarhöllinni í dag. Hattarmenn komust yfir í fyrri hálfleik og voru yfir í leikhléi en þó manni færri eftir að leikmanni Hattar var vikið af velli eftir að hafa farið of harkalega í Rajko markmann Fjarðabyggðar. Rajko sennilega nefbrotinn en hann kláraði þó leikinn

...
13 Febrúar, 2010
Riðlaskipting í 1. deild kvenna klár
...
12 Febrúar, 2010
Fjarðabyggð í úrslit
Fjarðabyggð tryggði sér sæti í úrslitaleik Síldarvinnslumótsins með 3-1 sigri á Sindra í kvöld. Úrslitaleikurinn fer fram í Fjarðabyggðarhöllinni á morgun laugardag kl. 15 gegn Hetti sem sigraði Leiknir F. 3-0 í kvöld. Jói Ben. skoraði fyrsta mark Fjarðabyggðar með glæsilegu skoti og Grétar bætti öðru við með góðum skalla og staðan 2-0 í hálfleik. Andri Hjörvar fékk síðan rautt spjald fyrir brot í seinni hálfleik og Sindri fékk víti sem þeir skoruðu úr. Það var síðan Sigurjón Egils sem innsiglaði sigur Fjarðabyggðar þegar hann fylgdi boltanum eftir af harðfylgi í markið....
12 Febrúar, 2010
Undanúrslit: Fjarðabyggð - SIndri

Föstudagurinn 12. febrúar kl. 19 í Fjarðabyggðarhöllinni.

Fjarðabyggð - Sindri

Undanúrslit Síldarvinnslumótsins

...
09 Febrúar, 2010
Úrslitakeppni Síldarvinnslumótsins
Síldarvinnslumótinu lýkur dagana 12. og 13. febrúar með úrslitakeppni fjögurra liða. Föstudaginn 12. febrúar mætast Höttur og Leiknir F. á Egilsstöðum kl. 19 og á sama tíma mætast Fjarðabyggð og Sindri í Fjarðabyggðarhöllinni. Taplið þessara undanúrslitaleikja mætast síðan í leik um 3. sætið kl. 13 laugardaginn 13. febrúar í Fjarðabyggðarhöllinni. Úrslitaleikur mótsins fer síðan fram kl. 15 í höllinni....
09 Febrúar, 2010
Aðalfundur KFF

Aðalfundur Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar verður haldinn fimmtudaginn 18. febrúar kl. 18 í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Dagskrá fundarins er eftirfarandi

...
03 Febrúar, 2010
Tap gegn Hetti
Fjarðabyggð tapaði síðasta leik sínum í undankeppni Síldarvinnslumótsins gegn Hetti 3-4. Leikið var í Fjarðabyggðarhöllinni og virtust okkar menn ekki tilbúnir í leikinn því Höttur komst í 0-3 áður en Jói Ben. skoraði tvö mörk þar af annað úr víti. Hattarmenn komust síðan í 2-4 áður en Daniel Sakaluk skoraði mark fyrir okkur í lokin og lokatölur því 3-4....
 
© 2009 copyright Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar Strandgötu 46, 735 Eskifjörður, sími 864-8704, fax 470-1121, e-mail: kff@kff.is ARON Vefumsjónarkerfi