02 Apríl, 2010 1.apríl - Ívar er ekki á leiðinni heim Frétt sem birtist hér á síðunni um að Ívar Ingimarsson ætlaði að spila með Fjarðabyggð í sumar var því miður ekki á rökum reist því það var um aprílgabb að ræða....
30 Mars, 2010 Sigríður Bjarney skrifaði undir um helgina Um helgina skrifaði Sigríður Guðnadóttir undir samning við KFF um að spila með liðinu í sumar. Þetta er virkilega ánægjuleg viðbót við þann leikmannahóp sem við erum að byggja upp í kvennaknattspyrnunni. Stuðningsmenn KFF muna sjálfsagt allir eftir henni Siggu en hún var einn af okkar allra bestu leikmönnum sumarið 2007....
29 Mars, 2010 Tvö töp í Lengjubikarnum Ekki reið KFF feitum hesti frá þessari knattspyrnuhelgi. Stelpurnar töpuðu 6-0 fyrir Völsungi á laugardaginn og strákarnir töpuðu svo 4-1fyrir Haukum í gær. Nú er bara að vona að það gangi betur næst. Næstu leikir eru á móti Fylki hjá strákunum, sá leikur er föstudaginn 9. apríl í Egilshöll. Stelpurnar spila næst á móti Draupni í Boganum sunnudaginn 11. apríl....
27 Mars, 2010 KFF á Facebook Stofnuð hefur verið aðdáendasíða fyrir Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar á Facebook og hvetjum við alla stuðningsmenn félagsins sem hafa aðgang að síðunni til þess að ganga í hópinn. Þar verða settar fréttir af félaginu líkt og á þessari síðu og settir verða upp viðburðir fyrir leiki liðanna og fleira skemmtilegt. Fyrir þá sem hafa áhuga þá er slóðin hér....
23 Mars, 2010 Nýr leiktími Leikur Fjarðabyggðar og Hauka í A deild Lengjubikarsins sem fara átti fram síðastliðinn sunnudag hefur nú verið settur á næstkomandi sunnudag 28. mars kl. 12. Á laugardaginn 27. mars kl. 14 spilar kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum gegn Völsungi. Báðir þessir leikir fara fram í Fjarðabyggðarhöllinni og nú er bara að mæta og styðja liðin okkar til sigurs....
21 Mars, 2010 Enginn leikur í dag Þar sem ekki virðist vera flogið í dag þá frestast leikur Fjarðabyggðar og Hauka um óákveðinn tíma. Nýr leikdagur verður tilkynntur hér á síðunni þegar hann liggur fyrir....
21 Mars, 2010 Frestun á leiknum Leikur Fjarðabyggðar og Hauka sem fram átti að fara í dag kl. 13 frestast eitthvað fram á daginn því ekki var flogið í morgun. Útlit er fyrir að flug hefjist á hádegi og yrði þá leikið í fyrsta lagi kl.16 í dag. Fylgist með hér á síðunni varðandi endanlegan leiktíma....
19 Mars, 2010 Fjarðabyggð - Haukar Fjarðabyggð og Haukar mætast í Lengjubikarnum um helgina. Leikurinn er á sunnudag kl. 13 í Fjarðabyggðarhöllinni. Haukar sem unnu sér sæti í Úrvalsdeild síðasta sumar eru sem stendur í 6. sæti A-deildar riðli 1 með 3 stig eftir 3 leiki. Fjarðabyggð er í 7. sæti með 3 stig eftir 4 leiki. Kíkjum nú í höllina á sunnudag og hvetjum Fjarðabyggð til sigurs....