Markmið KFF er að eiga lið í efstu deild, bæði í karla og kvennaflokki. Þangað förum við með þinni hjálp!


Í hvaða sæti endar karlalið Fjarðabyggðar í 1. deild í sumar?
7.-8. sæti
9.-10. sæti
11.-12 .sæti
6. sæti eða ofar
  


Vignir Daníel Lúðvíksson Nr.13
18 ára
Vörn

meira
14 Maí, 2010
Leikurinn á morgun laugardag
Enn er askan að stríða okkur og ljóst er að ekki verður flogið í dag. Skagamenn koma því akandi hingað austur í dag og leikurinn verður spilaður kl. 13 á morgun laugardag. Súpu og kaffifundur verður haldinn kl. 12 í Grunnskóla Reyðarfjarðar fyrir árskorthafa og stuðningsmenn KFF. Þar munu stjórnarmenn og þjálfarar gefa skýrslu úr starfinu. Flott upphitun fyrir leikinn og um að gera að mæta tímanlega til að tryggja sér sæti....
14 Maí, 2010
Felix Hjálmarsson í Fjarðabyggð
Felix HjálmarssonFjarðabyggð fékk í dag Felix Hjálmarsson lánaðan frá Fylki. Felix er 20 ára og hefur spilað bæði í vörn, miðju og sókn hjá Fylki. Felix spilaði 3 leiki með Fylki árið 2009 í Pepsideildinni og hittir hér fyrir Daníel Frey Guðmundsson sem er nú annað árið í röð á láni frá Fylki....
14 Maí, 2010
Aron Már Smárason í Fjarðabyggð
Aron í leik með Njarðvík...
13 Maí, 2010
Fyrsti heimaleikurinn
Fjarðabyggð mætir ÍA í Fjarðabyggðarhöllinni föstudaginn 14. maí kl. 18.30. Liðin unnu bæði sinn heimaleik í fyrrasumar. Fjarðabyggð vann 4-2 á Eskifjarðarvelli með mörkum frá Jóa Ben og Fannari Árna sem skoruðu báðir tvö mörk. ÍA vann svo 3-1 á Akranesi þar sem Jói Ben skoraði mark okkar manna. Bæði lið töpuðu leik sínum 2-1 í 1. umferð, ÍA á heimavelli gegn HK og Fjarðabyggð á útivelli gegn Víkingi. Stuðningur áhorfenda getur því skipt sköpum í leiknum og hvetjum við alla stuðningsmenn Fjarðabyggðar að mæta og styðja liðið til sigurs. Áfram Fjarðabyggð...
12 Maí, 2010
Fótbolti.net leitar að fréttaritara
Leitað er að manni til að sjá um umfjallanir á heimaleikjum Fjarðabyggðar í sumar samtals 11 leikir og fylgir að sjálfsögðu ársmiði á völlinn með í kaupunum. Áhugasamir hafi samband við maggi@fotbolti.net eða í síma 894-9207(Maggi)....
12 Maí, 2010
Leikmannasamningar undirritaðir
Frá vinstri, Alexandra Hearn, Sigrún Hilmarsdóttir og Klara ÍvarsdóttirÍ gærkvöldi skrifuðu þrjár stelpur úr 3. flokki Fjarðabyggðar undir samninga við félagið. Allar þessar stelpur eru fæddar árið 1995 og eru því á yngra ári í 3. flokki. Samningarnir sem þær skrifuðu undir eru allir til tveggja ára eða til loka keppnistímabilsins 2011. Við óskum stelpunum til hamingju með samninginn og hlökkum til að starfa með þeim og öðrum leikmönnum meistaraflokks kvenna í sumar....
11 Maí, 2010
Umfjöllun: Víkingur sigraði Fjarðabyggð
...
10 Maí, 2010
Leikurinn í beinni
Þeir hjá SportTV láta engan bilbug á sér finna þrátt fyrir að leiknum í gær hafi verið frestað til kvöldsins í kvöld, hann verður samt sem áður sýndur á http://www.sporttv.is kl. 19:00 í kvöld. Við hvetjum alla þá sem hafa ekki tök á því  að fara á völlinn og styðja við bakið á liðinu að horfa á hann á netinu....
 
© 2009 copyright Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar Strandgötu 46, 735 Eskifjörður, sími 864-8704, fax 470-1121, e-mail: kff@kff.is ARON Vefumsjónarkerfi