27 Júlí, 2010 Fjarðabyggð - Þróttur Fjarðabyggð mætir Þrótti Reykjavík í 1. deild karla á Eskifjarðarvelli miðvikudaginn 28. júlí kl. 18.30. Gengi beggja liða hefur valdið vonbrigðum í sumar en eftir 13 umferðir af 22 er Þróttur í 8. sæti með 14 stig og -7 mörk en Fjarðabyggð í því ellefta með 11 stig og -9 mörk. Hvetjum við alla að mæta á völlinn á morgun og hvetja Fjarðabyggð til sigurs í þessum mikilvæga leik. Látum nú heyra í okkur og áfram Fjarðabyggð....
26 Júlí, 2010 2. flokkur lék tvo leiki um helgina Sameiginlegt lið Fjarðabyggðar/Leiknis/Hugins í 2. flokki tapaði á laugardag fyrir Breiðablik 2-0 í Kópavogi. Á sunnudagskvöld mættu þeir svo toppliði Gróttu og endaði leikurinn með jafntefli 2-2. Liðið er sem stendur í 2. sæti með 20 stig eftir 10 leiki en Grótta á toppnum með 25 stig....
Veislan hefst á leik ÍA og Fjarðabyggðar á Akranesvelli kl. 20 föstudaginn 23. júlí. Skagamenn eru í 6. sæti með 16 stig en Fjarðabyggð er í 10. sæti með 11 stig nú þegar mótið er rétt rúmlega hálfnað.
2. flokkur spilar við Breiðablik 2 á Smárahvammsvelli kl. 14 laugardaginn 24. júli og síðan við Gróttu á Gróttuvelli kl. 20 sunnudaginn 25. júlí. Fjarðabyggð/Leiknir/Huginn er sem stendur í 3. sæti deildarinnar og á góðan möguleika að komast upp í næstefstu deild.
Í kvöld kl. 19.30 fer fram leikur Fjarðabyggðar/Leiknis og Fjölnis í 1. deild kvenna. Leikið er á Framvelli en leikurinn telst heimaleikur okkar. Liðið er nú í 3. sæti deildarinnar með 13 stig jafnmörg og ÍR en marki betra. Fjölnir er síðan í 5. sæti með 10 stig.
Fjölnir vann leikinn 2-1 en öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik og skoraði Andrea Magnúsdóttir okkar mark.
20 Júlí, 2010 Sigur hjá 2. flokki Sameiginlegt 2. flokks lið Fjarðabyggðar/Leiknis/Hugins vann í kvöld Hött/Einherja 2-0 á Búðagrund. Leikurinn byrjaði fjörlega og átti okkar lið nokkur góð færi en inn vildi boltinn ekki og staðan 0-0 í hálfleik. Það var síðan í seinni hluta síðari hálfleiks sem að mörkin litu dagsins ljós en Björgvin Stefán Pétursson skoraði þau bæði. Liðið er nú í 3. sæti deildarinnar með 19 stig og aðeins einu stigi á eftir Leikni/KB sem hefur leikið einum leik fleiri....
19 Júlí, 2010 Tap í eyjum og 2. flokkur leikur í kvöld
Fjarðabyggð/Leiknir tapaði leik sínum gegn ÍBV í Eyjum 5-1 en Alexandra Tómasdóttir skoraði markið úr vítaspyrnu.
Sameiginlegt 2. flokkslið Fjarðabyggðar/Leiknis/Hugins leikur síðan í kvöld mánudaginn 19. júlí kl. 20 á Búðagrund gegn Hetti/Einherja. Mætum öll og styðjum strákana.